Ljögregla hótar ljósmyndar lífláti
21.1.2009 | 20:38
LJósmynd: óskar
Hér er bréf sem Óskar birti til handa lögreglunni
fanst rétt að minna á það hér
Ég var handtekinn í dag útaf því að ég tók þessa mynd. stuttu seinna kemur lögreglumaðurinn sem horfir í linsuna og rífur mig af fótum mér í gegnum " línuna "
og rífur í hálsmálið á mér og hristir mig til og öskar " Þetta er ekki bara ég, þetta snertir fjölskylduna mína líka. Ef þú birtir þessa mynd þá drep ég þig. Ég kannast allveg við þig og veit allveg hver þú ert "
nú segi ég.
Kæri lögreglumaður
Ég hræðist þig ekki, kondu bara, ég er ekki að brjóta á þér með því að vinna vinnuna mína, eins og þú ert bara að vinna þína.
Þegar þú hótar mér lífláti til þess að sporna við tjáningarfrelsi mínu þá ert það ÞÚ SEM ERT AÐ BRJÓTA LÖG og gefur öllum þínum starfsbræðrum og systrum slæmt nafn í leiðinni.
Þú ættir bara að sjá kurteisina og almennilega heitin sem ég fékk frá hinum lögreglumönnunum eftir að þú handtókst mig fyrir að taka af þér mynd.
kæri Lögregluþjónn.. Skammastu þín.
kær kveðja.
Óskar Hallgrímsson
Athugasemdir
og þetta er meira að segja fín mynd
Gullvagninn (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 20:47
Ingibjörg Hinriksdóttir, 21.1.2009 kl. 21:23
Lögreglan er einnig vanhæf þ.s. hún hefur ekki tök á sadistunum sem virðast vera í meirihluta þeirra í dag. Síðan gera hinir sem eru þarna einungis til að halda uppi lög og reglu og brauðfæða fjölskyldur sínar ekki neitt. Þeir eru hræddir við það að ef þeir segja eitthvað gegn sadistunum að þeir verði útskúfaðir og jafnvel reknir úr löggunni. Sorgleg pattstaða og mega þeir kenna sjálfum sér um að aðhafast ekkert gegn sadistunum þegar það sýður í alvörunni upp úr. Lifi byltingin!!!
Alfreð Símonarson, 21.1.2009 kl. 22:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.